Þessi póstur er einn af þessum póstum sem fjalla um hægðir og vesen í kringum það. Þeir sem eru viðkvæmir og þola ekki tal um slíkt skulu beina augum sínum annað og helst slökkva á vafranum strax.
Ég er að vara ykkur við.. fjallar um kúk og fleira.
Allt þá þrennt er.. nú vara ég enn einu sinni við því að lesa þennan pistil. Ég mun ekki skafa undan og lýsa öllu eins nákvæmlega og mér er unnt.
Jæja kominn svo langt?
Í dag var helling að gera. Það var stór ráðstefna á vegum Hjallastefnunnar í dag og ég þurfti að mæta í skólann. Mig langaði að fara á ráðstefnuna en skólinn hefur forgang. Ég vissi að goðið myndi blása krafti í fólk og allir myndu ganga út með gleði og kraft í hjarta sér.
En í skólanum voru líka skemmtilegir hlutir að gerast. Erum að byrja á nýjum áfanga og í honum er stórt verkefni og við ráðum sjálf hvað við tökum fyrir. Ég var kominn með snilldarhugmynd og langaði að setja ákveðna hluti í gang. Ég ætlaði að gera bæði, byrja í skólanum og þegar búið væri að ákveða verkefnið þá myndi ég rjúka á ráðstefnuna og heyra síðasta fyrirlestur goðsins og skella mér síðan í ráðstefnumatinn.
En... í gær þá var mér smá bumbult. Ekkert alvarlegt og þegar ég skeit þá leið mér mun betur. Hægðirnar voru bara eðlilegar og allt var í góðu. Herbergisfélaginn minn var veikur með gubbupest og niðurgang og ég vonaði að ég yrði ekki svo veikur. Þegar ég vaknaði í morgun þá var óróleikinn kominn aftur. Ég fékk mér smá að borða og skellti mér í skólann. Mér var smá óglatt og var má þrýsting í rassi. Fyrirlesturinn var að fara ofan garð og neðan hjá mér á meðan ég barðist við þessa vanlíðan. Síðan skellti ég mér á klósettið og skeit.. ég veit nú ekki hvort "skeit" sé rétta orðið. Drulla væri mun betra orð. Hvellskita væri líka í áttina en samt ekki alveg þar sem þetta var að miklu meirihluta vatn.
Ég áttaði mig þá að þetta þýddi ekki. Kvaddi hópinn minn, skellti mér aftur á klósettið þar sem sagan endurtók sig. Keyrði síðan heim þar sem skipt var um nærbuxur og lagst upp í rúm. MIlli þess að ég dottaði þá fór ég á klósettið, eitt skiptið velti ég því fyrir mér hvort ég væri að pissa. Hljóðin sem komu þegar óæðri endinn minn skilaði vatninu var eins og þegar maður heyrir kvenmann pissa.
En ég tók mig saman í andlitinu og fór á síðasta fyrirlesturinn á Ráðstefnunni. Þurfti bara að fara þrisvar á klósettið og hélt þetta út og gott betur. En það var ekki séns að ég ætlaði að fara mæta í matinn og láta fólk missa matarlystina. Ég held að fólk hafi ekkert gaman að því að sessunauturinn sé með magakveisu og þurfi sífellt að standa upp og rjúka á klósettið.
Sýnir færslur með efnisorðinu Hjallastefnan. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Hjallastefnan. Sýna allar færslur
26 september, 2008
25 september, 2008
Viltu fá huggun?
Heilræði
Viltu fá huggun? Þessi setning er mikið notuð hjá mér, alveg síðan ég uppgötvaði hana. Hún er mjög einföld í notkun en minnkar gríðarlega spennuna og röfl. Maður notar hana þegar einhver meiðir sig. Aðallega þegar einhver kemur til mans grátandi. Maður horfir á barnið og spyr "viltu fá huggun?" barnið kinnkar kolli og maður gefur því gott, mjúkt og yndislegt faðmlag. Barnið hættir að gráta í flestum tilfellum og fer síðan að leika sér.
Ef barnið segir "hann/hún meiddi/ýtti/hrinti mér" þá segir maður bara á móti "já er það, þá skaltu segja honum/henni að þú vilt ekki láta meiða/ýta/hrinda þér" og þá stekkur barnið af stað og segir við hitt barnið "HÆTTU" og oftast er málið búið þegar sú setning er komin í loftið.
Ef barnið hættir ekki að gráta strax við faðmlagið þá skoðar þú barnið. Athugar hvort að það sé einhver sár á því eða hvort einhver bólga byrjar að myndast. Þá getur maður farið í "hvað gerðist" spurningaleikinn.
En með þessari aðferð þá er hægt að sleppa við "hvað gerðist og hver gerði hvað" spurningaleikinn.

12 júní, 2008
Stelpur og Strákar
Þessi mynd var tekin um miðjan maí í útskriftarferðinni sem skólabörnin á Velli fóru í. Þarna sjást allir drengirnir mínir og síðan er hún samkennari minn sem kenndi stúlkunum. Rosalegur vetur er að baki og þessi útskriftarferð var æðisleg. En nú er svo komið að ég er búinn að breyta all svakalega til. Ég er farinn að kenna litlum stúlkum. Aldurinn er tveggja að verða þriggja, jú allar hættar með bleyju en tíminn hjá okkur fer í að leita að "dódódíl" sem leynist víða. Já í stað þess að vera sveittur í slagsmálum við 10 sex ára gutta þá fer ég í hvíld og fer í mesta lagi í göngutúr í kringum skólann eða næsta nágrenni hans.Kynin eru svo ólík að það er eiginlega fáránlegt að hugsa um það. Upplifun mín sem kennara er gjörólík. Það er erfitt og krefjandi að vera strákakennari en maður uppsker mikla gleði oft á tíðum. Það er hvorki erfitt né krefjandi að vera stúlkukennari, enn sem komið er, en það þarf oft að grafa og ýta við þessum stúlkum til þess að finna gleðina. Það er mjög auðvelt að vera á einhverju dóli hjá stúlkum. Hjá strákum þá uppskerðu helvíti ef þú slakar eitthvað á. Aldurinn kemur eflaust að miklu leyti í þetta... en samt. En ég nýt þess að vera á stúlknakjarnann og mun þegar fram í sækir vekja stúlkurnar upp af doðanum og fá þær í lið með mér.
27 september, 2007
Hjallastefnan
Ég var að skipta á bleyju á einum af yngri strákunum í gær þegar einn af hinum 5 ára "stóru" strákum stekkur inn og segir þeir eru búnir að opna hurðina og eru að fara út. Ég vissi hvaða hurð þeir voru að tala um, hún er í leikstofunni og er alveg ferleg. En þar sem ég var klæddur í latex hanska og var upp að olnboga í skít þá gat ég augljóslega ekki stokkið af stað. Þannig að ég leit á drenginn og sagði þú verður að stoppa þá. Um hálfri mínútu síðar þá var ég kominn með drenginn í bleyjuna og arkaði af stað, reiðubúinn til að setja mig í löggustellingar og stöðva drengina og urra svolítið. Þá sér einn af hinum 5 ára mig vera að rölta í átt að leikstofu og kallar "þetta er allt í lagi, þeir eru hættir og ætla ekki gera þetta aftur". Ég lít á hann, kíki inn í leikstofu þar sem 4 drengir eru og enginn virðist vera týndur. Kinnka kolli til drengsins sem kallaði og hrósa þeim öllum fyrir að leysa þetta mál. Fer svo og klæði bleyju drenginn í buxur.
Þetta var hjalla móment.
Þetta var hjalla móment.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)